Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Frá metsöluhöfundinum afkastamikla, Danielle Steel, kemur hér ógleymanleg saga um sorg og missi, en einnig þá von og hugrekki sem oftar en ekki fylgja.

Pip Mackenzie er ellefu ára gömul en hefur þrátt fyrir það upplifað mikinn harmleik sem þjakar hana og móður hennar. Í göngutúr með hundinn sinn við strandlengju San Francisco kynnist hún listmálara sem sér í henni sína eigin dóttur. Fljótlega hefst með þeim mikill vinskapur. Móðir Pip, Ophélie, er efins í fyrstu en fljótlega er málarinn Matt Bowles orðinn nátengdur þeim mæðgum og tekst þeim með vináttu og kærleika að lækna sárin sem hafa þjakað þau öll fram að þessu.

Hér kafar höfundurinn ofan í afleiðingar missis á fjölskyldur og kannar hvernig þær geta með sem bestu móti komist heilar frá honum.

Myndin Safe Harbour, sem kom út árið 2007, er byggð á bókinni.

Danielle Steel er mest seldi lifandi höfundur heims og hefur ritað yfir 200 bækur, þar með taldar skáldsögur, barnabækur, óskáldað efni, ljóðasafn og texta fyrir tónlist. Verk hennar hafa samtals selst í meira en milljarði eintaka um allan heim og hefur hvert þeirra komist á metsölulista á heimsvísu, þar með talið hjá New York Times, Wall Street Journal og The Sunday Times. Franska ríkisstjórnin veitti henni heiðursnafnbótina „Officier“ við reglu lista og bókmennta árið 2002 og „Chevalier“ við regluna „Legion d’Honneur“ árið 2014. Á milli skrifa stundar Steel mannúðarstarfsemi af miklum hug og býr til skiptis í París og San Francisco. Danielle Steel er níu barna móðir.

Auteur

  • Danielle Steel (auteur)

    Avec plus d'une centaine de livres publiés en France et plus d'un milliard d'exemplaires vendus à travers le monde, Danielle Steel est, depuis ses débuts, une auteure au succès inégalé. Francophone, passionnée de notre culture et de l'art de vivre à la française, elle a été promue, en 2014, au grade de chevalier dans l'ordre de la Légion d'honneur.

Auteur(s) : Danielle Steel

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Danielle Steel

Publication : 26 novembre 2024

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre audio [MP3]

Contenu(s) : MP3

Protection(s) : Aucune (MP3)

Taille(s) : 383 Mo (MP3)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre audio [MP3] : 9788727144856

Les promos du moment

--:-- / --:--