Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Dee dómari, hinn frægi meistari í uppljóstrun glæpa, er nýtekinn við dómstólnum í borginni Poo-yang. Hans fyrsta verkefni er að hnýta lausa enda í hrottalegu morðmáli sem bíður úrskurðar. Hin unga Hreina Jaði hefur verið myrt á heimili sínu á Hálfmánastræti og bendir allt til þess að leynilegur elskhugi hennar hafi verið að verki. Inn í málið flækjast sögusagnir af kraftaverkum úr munkamusteri þar sem fjölmargar konur hafa orðið barnshafandi í nafni trúarinnar.Bækurnar um ráðgátur Dee dómara eru byggðar á fornum glæpabókmenntum þar sem Dee leysir margslungin mál sem eiga mörg hver rætur sínar að rekja úr raunverulegum dómsmálum frá Kína.Robert van Gulik (1910-1967) var hollenskur rithöfundur sem er best þekktur fyrir ævintýrin um Dee dómara. Sögupersónuna fékk hann að láni úr kínverskri skáldsögu frá 18. öld sem hann þýddi yfir á ensku og var hans fyrsta útgefna verk. Í kjölfarið skrifaði hann 17 bækur um Dee dómara sem komu út á árunum 1949-1968. Gulik var margt til lista lagt en ásamt ritstörfunum var hann austurlandafræðingur, diplómati og tónlistarmaður.

Auteur

Auteur(s) : Robert van Gulik

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Robert van Gulik

Publication : 23 février 2023

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre audio [MP3]

Contenu(s) : MP3

Protection(s) : Aucune (MP3)

Taille(s) : 380 Mo (MP3)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre audio [MP3] : 9788728449189

--:-- / --:--