Résumé
Þessi saga kom út árið 1899 og naut mikilla vinsælda meðal íslendinga á Íslandi og íslenskra vesturfara. Sagan gefur innsýn inn í líf Íslendinga sem fluttust brott og komu sér fyrir í Kanada eða bandaríkjunum upp úr 1870. Eiríkur Hansson, aðalpersóna sögunnar, segir frá æviminningum sínum. Frásögn hans hefst á Íslandi þegar hann er ungur piltur og rekur ferðalag hans vestur um haf. Jóhann Magnús Bjarnason fæddist árið 1866 í Meðalnesi í Norður-Múlasýslu. Árið 1875 flutti hann ásamt fjölskyldu sinni vestur til Kanada, þá aðeins níu ára gamall. Jóhann átti aldrei aftur eftir að sjá fósturjörðina. Foreldrar hans námu land í Nova Scotia í Kanada, en síðar fluttist Jóhann Magnús til Winnipeg, þar sem hann gekk í skóla og gerðist svo kennari. Samhliða kennarastarfinu var Jóhann mikils metinn rithöfundur og skrifaði bæði skáldsögur, smásögur, greinar og ljóð. Verk hans eru talin hafa haft áhrif á íslenska rithöfunda sem síðar komu, til dæmis Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness. Jóhann lést árið 1945 og þó hann hafi aldrei átt afturkvæmt til Íslands leit hann alltaf á sig sem Íslending, enda er ýmislegt íslenskt að finna í verkum hans.
Auteur
Auteur(s) : Jóhann Magnús Bjarnason
Caractéristiques
Editeur : Saga Egmont International
Auteur(s) : Jóhann Magnús Bjarnason
Publication : 16 décembre 2022
Support(s) : Livre numérique eBook [ePub]
Protection(s) : Marquage social (ePub)
Taille(s) : 717 ko (ePub)
EAN13 Livre numérique eBook [ePub] : 9788728281680