Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Gullsmiður og skraddari voru saman á ferðalagi þegar þeir heyra einkennilegan söng. Þeir ganga á hljóðið og finna hóp af dvergum dansandi og syngjandi saman í hring. Inni í miðjum hringnum stóð gamall maður og brýndi hníf. Gamli maðurinn rakar skegg og hár af þeim félögum sem nú var hætt að lítast á blikuna enda alls ekki vissir um það hvort þeir væru staddir í raunheimum eða í draumi. Daginn eftir vakna gullsmiðurinn og skraddarinn með vasana fulla af gulli. Gullsmiðurinn vill ólmur gera aðra tilraun til að hitta dvergana og freista þess að fá meira gull á meðan skraddarinn var ánægður með sinn hlut. Gullsmiðurinn heldur af stað til fundar við dvergana en allt fer á annan veg fyrir gullsmiðinn sem mátti sætta sig við að græðgin varð honum að falli. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Auteur

Auteur(s) : Grimmsbræður

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Grimmsbræður

Publication : 17 juin 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre numérique eBook [ePub]

Contenu(s) : ePub

Protection(s) : Marquage social (ePub)

Taille(s) : 338 ko (ePub)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre numérique eBook [ePub] : 9788728036433

--:-- / --:--