Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Skraddari nokkur, smávaxinn en hugprúður, sat við sauma þegar bóndakona býður honum að kaupa af sér hunang. Skraddarinn smyr nýkeyptu hunanginu á væna brauðsneið og lætur standa á meðan hann klárar verkin. Hunangið laðar til sín flugnager mikið sem skraddarinn fargar með einu slagi. Hreykinn af afreki sínu, saumar skraddarinn linda um mittið á sér með slaogorðinu "Sjö í einu höggi" og leggur af stað út í hinn stóra heim til að segja frá afreki sínu. Þegar skraddarinn kemur að höll konungsins þykir hermönnum konungs í fyrstu ekki mikið til þessa væskilslega manns koma. Það renna þó á þá tvær grímur þegar þeir sjá að þar fari mögulega stríðsmaður mikill sem slegið hefur sjö í einu höggi.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Auteur

Auteur(s) : Grimmsbræður

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Grimmsbræður

Publication : 22 janvier 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre audio [MP3]

Contenu(s) : MP3

Protection(s) : Aucune (MP3)

Taille(s) : 14,8 Mo (MP3)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre audio [MP3] : 9788728038253

--:-- / --:--