Résumé
Fyrsti farmunkurinn lendir óvænt í mjög flóknum aðstæðum. Geturðu ímyndað þér að hann hafi grafið sína eigin frænku og konuna sem hann elskaði í greftrunarhúsi? Það sem er enn furðulegra, er að hann gerði það vegna þess að frænka hans bað hann um það. Etir það sneri fátæki förumunkurinn aftur til heimili föður síns, aðeins til þess að komast að því að það hafi verið tekið yfir af vezírnum. Munkurinn var lokaður úti nálægt dauðans dyrum. En hvað átti sér stað þar á eftir fyrir frænku hans í greftrunarhúsinu? Mun munkurinn gefa upp öndina? Þetta er 30. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.
Caractéristiques
Editeur : Saga Egmont International
Publication : 12 juin 2021
Support(s) : Livre audio [MP3]
Protection(s) : Aucune (MP3)
EAN13 Livre audio [MP3] : 9788726889222