Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Tveir einstæðir menn, sem við skulum kalla Matti Mainio og Jussi Juonio, bjuggu árið 1999 í húsi sem í voru tvær litlar íbúðir og voru þeir hvor með sína íbúðina á leigu. Þetta var í Jyllintaival sem er nokkra kílómetra frá þéttri byggð í bænum Kurikka. Íbúðirnar sem þeir leigðu voru báðar tveggja herbergja með sérinngangi. Matti Mainio var 65 ára elli- og örorkulífeyrisþegi en hann var fatlaður vegna meiðsla í fótlegg og varð að nota staf til að styðja sig við þegar hann gekk. Matti var búinn að búa í húsinu í mörg ár. Jussi Juonio var 56 ára og hafði fram að þessu framfleytt sér með ýmiss konar lausavinnu. Hann átti við áfengisvandamál að stríða sem dró mjög úr möguleikum hans á að fá vinnu og þegar þetta gerðist lifði hann á bótum frá sveitarfélaginu. Jussi hafði flutt inn í sína íbúð 1999. Matti og Jussi vörðu báðir miklu af tíma sínum í að innbyrða fljótandi fæðu. Jussi, sem var betur á sig kominn, hjólaði næstum daglega í miðbæinn í Kurikka þar sem hann hitti menn með sama áhugamál. 

Auteur

Auteur(s) : Ýmsir Höfundar

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Ýmsir Höfundar

Publication : 18 août 2020

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre numérique eBook [ePub]

Contenu(s) : ePub

Protection(s) : Marquage social (ePub)

Taille(s) : 430 ko (ePub)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre numérique eBook [ePub] : 9788726523621

Les promos du moment

--:-- / --:--