Suivre l’actualité de ce titre (promotion, parution...)

Résumé

Í ævintýrinu Tungumálin þrjú segir frá gömlum aðalsmanni sem átti einn son. Aðalsmaðurinn sendir son sinn til frægra kennara í öðrum löndum því sonurinn þótti svo heimskur og virtist ekkert geta lært. Allar tilraunir til þess að kenna syni aðalmannsins misheppnuðust, að því er virtist í fyrstu, og í bræði sinni vísar aðalsmaðurinn syni sínum á dyr. Sonurinn hefst við í skóginum og virðist geta leyst úr ótrúlegustu vandamálum sem upp koma í sveitunum í kring, þökk sé náminu sem faðir hans taldi einskis vert. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.

Auteur

Auteur(s) : Grimmsbræður

Caractéristiques

Editeur : Saga Egmont International

Auteur(s) : Grimmsbræður

Publication : 17 juin 2022

Intérieur : Noir & blanc

Support(s) : Livre numérique eBook [ePub]

Contenu(s) : ePub

Protection(s) : Marquage social (ePub)

Taille(s) : 256 ko (ePub)

Langue(s) : Islandais

EAN13 Livre numérique eBook [ePub] : 9788728036396

--:-- / --:--